Björn Hildir

Dagbók um lífið hér í Cambridge í Englandi

maí 17, 2006

Gleðifréttir númer 2

Halló allir saman nú,

Þá er komið að því að fara skila verkefni vetrarins en það er ritgerðinni sem ég hef verið að gera hérna í Köben. VVVHHHIIIIIIII Þetta er búið og verður ekki breytt. Þetta endaði í 70 bls. með appendix og er hin skemmmtilegasta lestning. Ég get ekki sagt annað en þetta sé léttir. Að vísu þarf ég að fara og verja hana í júní svo ég er nú ekki alveg búinn.

Eigið öll góðan dag og verið margblessuð og sæl.

Hilsen
Björn Búinn

maí 08, 2006


Radiohead á tónleikum í gær Posted by Picasa

Gleði Dagur.

Sælt veri fólkið,

Dagurinn í gær verður einn af þeim eftirminnilegu á lífsleiðinni. Hann byrjaði mjög vel í 25 stiga hita og glaða sólkyni. Við skötuhjúinn fórum hérna í fallegan garð með teppi og þóttumst vera að læra. Síðan á leiðinni heim var svo fenginn sér Ítalskur ís. Ekki slæmt en það átti bara eftir að batna því þegar við komum heim fór ég og kíkti á póstinn minn. Þá hafði ég fengið póst að ég gæti keypt miða á Radiohead tónleika sem áttu að byrja tveimur tímum síðar í sal fimm mínútum frá þar sem við búum. Ég var nefnilega búinn að skrá mig á biðlista eftir miðum, því það var uppselt strax á fyrsta degi. VÁAAAA þessir tónleikar voru algör snilld, frábært sjóv og geðveikt prógram. Þetta var alveg frábært og Tom Yorke var í topp formi og hoppaði eins og vitleysingur á sviðinu. Takk fyrir mig Radiohead!!!

Hilsen
Björn

maí 05, 2006

Veðurblíða

Sælt veri fólkið,

Mig langaði að lýsa fyrir ykkur þessari viku hérna í köben. Fyrsta sem er nú fréttnæmt er að ég er búinn að vera hjóla uppí vinnu sem eru 22 kílómetrar fram og tilbaka. Það byrjaði allt mjög vel ég lagði leiðina á minnið og komst beinustu leið uppí vinnu. Síðan á leiðinni heim var alveg viss hvert ég væri að fara en beygði inná vitlausa götu og ég síðan hólaði ég í 10. mín og fattaði á ég væri á rangri leið. Þessi hjólatúr stóð yfir í einn og hálfan tíma og varð aðeins lengri en ég ætlaði mér. Daginn eftir viltist ég á leiðinni uppí vinnu. En það sem bjargaði þessu öllu var að það voru 20 gráður og glaða sólskyn allan tíman. Þessi vika nefnilega er búinn að vera alveg frábær og í dag er 24 gráður og inni sit ég skrifa þetta blogg.´:(
Síðan fréttir hérna af Bárði og Ingiríði en þau eru bara farin. Ég veit ekki hvað gerðist en það verða enginn dúfu ungar hér í ár.

Hilsen,
Björn H.